Jæja strákar. Þá er bikarleikurinn búinn og áttum við leik við Fjölni í
16 liða úrslitum SS-bikarsinis eða hvað þetta nú heitir. Við áttum samt
sem áður í þokkalegu basli við þá í fyrri hálfleik og var staðan til að
mynda i hálfleik 12-13 okkur í vil. En í seinasta leik við Fjölni var
staðan í hálfleik 22-10. En það var samt gaman að sjá baráttuna í
Fjölnismönnum sem að eru nú ekki beint miklir íþróttamenn. En Krissi
Coach setti leikinn upp svona nokkurnevginn upp fyrir þá sem að spila
hafa lítið með 2 flokki og gerði hann til að mynda 6 breytingar á
byrjunarliðinu síðan úr fyrri leik. Svo komu inní hópinn þeir Dóri
Hverfis,Binni Bagg og Laddi Rocha og Egill Örv og Sötri duttu út í
þessum leik. En samt sem áður þá vannst fínn 10 marka sigur 20-30 okkur
í vil og allir duttu í gott skap eftir leik.
Svo er leikur á móti Valsmönnum á Sunnudaginn kemur og verður gaman að
mæta Eyþóri og Félögum. Vona að allir láti sjá sig þar en leikurinn er
held ég klukkan 3 á sunnudaginn í Austurbergi ef ég fer með rétt mál.
Skýrslan og Highlights.
Byrjunarlið.
Markmaður: Danni
Hornamenn: Binni og Dóri
Skyttur

ttó og Ari
Miðja:Toggi
Lína:Gunni
Maður leiksins: Sonni vildi meina að hann væri maður leiksins(gefum honum það bara)
Innkoman:Jáá líka Sonni eins og hann vill meina það
Snilldin: Þegar að Egill sagði Váá markmanninnum hefur aldrei liðið
jafn vel og þarna þegar hann varði víti frá Binna. Og þegar að
Undiritaður á Sirkus sendingu á Andra heimi sem að skoraði með
innkastskoti.
Rugglið: Verða að segja spilamennskan okkur í síðustu 2 leikjum(Strákar verðum að bæta þetta fyrir Vals leikinn).
Skýrslan: Markaskorarar og agabrot.
Ottó Freyr Aðalsteinsson 6 mörk
þorgrímur Ólafsson 6 mörk eit gult
Halldór Hinriksson 5 mörk
Þórhallur Pétursson Rocha 3 mörk
Andri Heimir Friðriksson 3 mörk 2 mín
Brynjar Karl Karlson 2 mörk 2 eitt gult
Arne Karl Wehmeier 2 mörk
Jónatan Vignisson 2 mörk
Sigurjón Friðbjörn Björnson(kvikyndið) 2 sinnum 2 mín. SÆLLLLLLLL.............
Wehmeier-inn -3-,-8- Sonni tekur alltaf númerið mitt þannig að ég þarf að fara að lemja hann í næsta leik..
P.s Ottó ég mun rústa þér í NBA þegar að þú þorir.
Heimir Morthens 1 og 2 mín